Höfundur: Jón Hjaltason
Úr eldri árgöngum
Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.
Titill | Höfundur | Útgefandi | Lýsing |
---|---|---|---|
Markús Á flótta í 40 ár. Öðruvísi Íslandssaga | Jón Hjaltason | Völuspá útgáfa | Jón Hjaltason sagnfræðingur notar ótrúlega sögu útlagans Markúsar Ívarssonar til að varpa ljósi á lífsaðstæður á 19. öld og tekst á við goðsagnir. Máttu fátækir giftast? Hvað með „falleraðar“ konur? Alræði bænda? Voru einstæðar mæður réttlausar? Fjallað er um tukthús og böðla, ótrúlegar skyldur presta, hór, legorð og faðernispróf 19. aldar. |
Markús Á flótta í 40 ár. Öðruvísi Íslandssaga | Jón Hjaltason | Völuspá útgáfa | Markús Ívarsson baslaði hálfa ævina í Eyjafirði, var vinnumaður og bóndi, átti 15 börn með 8 konum, sat fangi í þrjú ár í Kaupmannahöfn, braust úr tukthúsi á Akureyri, var flóttamaður í Skagafirði og eftirlýstur í tæp 40 ár. Lengst af útlegðar bjó Markús á Snæfellsnesi undir nafninu Sigurður Jónsson. Markús dó 1923 á Litla-Hrauni á Snæfellsnesi. |
Ótrúlegt en satt Saga Akureyrar í öðruvísi ljósi | Jón Hjaltason | Völuspá útgáfa | Sagnfræðingurinn Jón Hjaltason kemur víða við í þessari fróðlegu og afar skemmtilegu bók. Hið óvenjulega í sögu Akureyrar er í sviðsljósinu, það sem síður er talað um og verður út undan. Mikill fjöldi ljósmynda bregður skærri birtu á kaupstaðinn við Pollinn. Margar þeirra hafa aldrei birst á prenti og segja sögu sem við höfum aldrei séð fyrr en... |
Þessir Akureyringar ...! Úrval grínsagna um íbúa bæjarins þar sem góða veðrið var fundið upp | Jón Hjaltason | Völuspá útgáfa | Uppákomur, spaugsyrði og lögmannsraunir. Gunni Palli skýtur dýrasta“ hringanóra sögunnar, „ekki fikta í tökkunum“, Margrét Blöndal grefst fyrir um Íslandsmetið í golfi, munurinn á Akureyringum og Reykvíkingum og forsetinn Kiddi frá Tjörn heimsækir spítalann. Og Ódi eltist við naktar stúlkur. Fyndnasta bók þessara jóla. |