Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Glæður galdrabáls

  • Höfundur Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Glæður galdrabáls fjallar um tíma galdraótta og ofstækis. Hér er rakin saga móður og sonar sem lögðu fótgangandi í langa ferð norðan úr landi vestur á firði í leit að betri kjörum, á síðari hluta 17. aldar, þegar tíðkaðist að brenna fólk á báli fyrir galdra.

Orðrómur einn einn gat leitt til galdraákæru sem kostaði lífið og vitnisburður sveitunga réði úrslitum um líf eða dauða. Í Selárdal í Arnarfirði mætti þeim mæðginum samfélag gegnsýrt af galdraofstæki sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir þau bæði. Sagan er sögð eftir bestu fáanlegu heimildum – skáldað í eyður þar sem vitneskju skortir – og ofin saman við sagnfræðilegar staðreyndir um atburði og tíðaranda brennualdar. Hér er fjallað um sögulega atburði og mannleg örlög af sagnfræðilegu og skáldlegu innsæi.