Indjáninn
skálduð ævisaga
Indjáninn er saga um fjörmikinn strák, örverpi aldraðra foreldra. Drengurinn á við ýmis vandamál að stríða sem valda honum erfiðleikum í uppvextinum, svo sem ofvirkni, athyglisbrest, rautt hár og nærsýni. Hann er hugmyndaríkur og margvísleg uppátæki hans, sum stórhættuleg, vekja litla lukku hjá hinum fullorðnu. Áhrifamikil og stórskemmtileg.
"Fæðing mín er annað reiðarslag fyrir fjölskylduna. Að vísu er ég ekki þroskaheftur. Það er léttir. En eftir fæðinguna blasir önnur hryllileg staðreynd við: Ég er rauðhærður. Það hefði ekki getað verið meira áfall þótt ég hefði verið svartur."
Sígild skáldævisaga sem sveiflast á milli strákslegrar gleði og nístandi einmanaleika þess sem ekki er alltaf í takt við umhverfið, en jafnframt er hér brugðið upp ljóslifandi mynd af samfélagi áttunda áratugarins frá sjónarhorni barnsins.
Jón Gnarr kallar Indjánann skáldaða ævisögu í eftirmála sínum: "Margir spyrja sig eflaust hvort þessi bók sé ævisaga eða skáldsaga. Hún er bæði. Hún er ekki alveg sönn. Það er þó engin bein lygi í henni. Ég trúi ekki á lygi."
"Indjáninn orkaði ekki síst sterkt á mig sem góð lýsing á uppruna minnar kynslóðar sem hefur hingað til verið full upptekin við rassgatið á sjálfri sér til að kryfja sig af nokkurri alvöru." Óttar Proppé, Lesbók Mbl.