Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Sjáðu, sjáðu mig. Það er eina leiðin til að elska mig

  • Höfundur Elísabet Jökulsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Kona missir rödd og fær hana aftur. Mögnuð ljóðabók sem hefur verið ófáanleg lengi. Elísabet Jökulsdóttir er alvöru skáld. Hún horfir fast í augun á lesandanum og orðar sterkar tilfinningar; ást, heift, gleði og sorg, af oddhvassri blíðu og lífsþorsta, sýnir náttúru landsins á síkvikan hátt og lítur aldrei undan.