Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Þormóður Torfason

Dauðamaður og dáður sagnaritari

  • Höfundur Bergsveinn Birgisson
  • Þýðandi Vésteinn Ólason
Forsíða bókarinnar

Þormóður Torfason fæddist árið 1636 og varð einn mikilvirkasti sagnaritari landsins - en var líka dæmdur til dauða fyrir að verða mannsbani. Bergsveinn Birgisson skrifar hér sögu þessa stórbrotna manns, með svipaðri aðferð og lesendur þekkja úr hinni vinsælu bók hans, Leitin að svarta víkingnum.

Ungur Íslendingur er sendur til að safna öllu sem hann kemst yfir á Íslandi af gömlum handritum og sögum og fara með til kóngsins í Kaupmannahöfn. Þetta er upphaf óvenjulegrar og spennandi sögu um ástríðu og forneskju, morð og skipbrot. En líka sagan af því hvernig vitneskja okkar og fróðleikur um víkingatímann varðveittist – og mátti oft litlu muna.

Sagnaritarinn Þormóður Torfason fæddist árið 1636. Hann naut m.a. handleiðslu Hallgríms Péturssonar skálds, heillaðist ungur af fornum fræðum, varð lagsbróðir og vinur Árna Magnússonar og dvaldi við skriftir í Kristjánsborgarhöll í skjóli Danakonungs. Síðar settist hann að í Noregi þar sem hann varð einn afkastamesti sagnaritari síns tíma – en var líka dæmdur til dauða fyrir að verða manni að bana.

Bergsveinn Birgisson er líka þekktur fyrir vinsælar skáldsögur sínar, m.a. Svar við bréfi Helgu og Lifandilífslæk. Hann var nýverið sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Háskólann í Bergen, ekki síst fyrir að „miðla norrænum menningararfi til almennra lesenda.“