Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Washington DC

  • Höfundur Jón Óskar Sólnes
Forsíða kápu bókarinnar

Washington DC vaknar til lífsins í fjörugri og tæpitungulausri frásögn þar sem víða er drepið niður fæti. Höfundur fer með lesendur í ferðalag um höfuðborg Bandaríkjanna og oft um ótroðnar slóðir.

Forðast er að leggja dóm á menn og málefni og lesandanum látið eftir að mynda sína eigin skoðun á þeirri vegferð sem virðist hafa gerbreytt bandarískum gildum, einkum í Washington DC.

Óhjákvæmilega kemur nýkjörinn forseti Bandaríkjanna við sögu, en hér er dregin upp talsvert víðtækari mynd af húsbóndanum í Hvíta húsinu en sú sem menn eiga að venjast.

Hér er fyrst og fremst á ferðinni lifandi og litrík frásögn sem byggir á fróðleiksmolum úr heimi diplómatíu og margra ára rýni í bandarísku samfélagi.