Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Að verða að manni

  • Höfundur Sigurður Kristinsson
Forsíða kápu bókarinnar

Að verða að manni eru bernskuminningar norðan af Ströndum. Söguhetja okkar er þrátt fyrir ungan aldur í baráttu við náttúruöflin, vopnaður að hætti fullorðinna og oft áræðinn um efni fram.

Að verða að manni eru bernskuminningar norðan af Ströndum. Hugljúfar en í aðra röndina ógnvekjandi börnum 21. aldarinnar sem sjá hér hættur í hverju skrefi. Söguhetja okkar er þrátt fyrir ungan aldur í baráttu við náttúruöflin, vopnaður að hætti fullorðinna og oft áræðinn um efni fram. Sigurður Kristinsson er fæddur 21. desember 1939 á Kirkjubóli í Hrófbergshreppi. Sigurður býr í Grindavík. Hann er smiður og uppfinningamaður og hefur komið víða við á langri starfsævi.