Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Château de la Rivière

eða, Dagdraumar af dauðri fortíð

  • Höfundur Ágúst Verdal
Forsíða kápu bókarinnar

Eftir dauða fjölskylduföðurins verður síðasti hertogi de la Rivière fjölskyldunnar að gefa allt upp á bátinn til þess að halda fornri ættinni frá því að steypast endanlega í glötun. Franska byltingin er rétt handan við hornið og ekki eru allir sáttir við hlutskipti sitt.

Upp úr þokunni gnæfa turnar Château de la Rivière einsog þeir hafa gert í hundruð ára. Margir hafa helgað líf sitt verndun þessara turna; aðrir fórna nú öllu til þess að reyna að brenna þá niður til grunna.