Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Daði

  • Höfundur Sigga Dögg
Forsíða bókarinnar

Sagan um Daða fjallar um ungan gaur sem glímir við ástina, ástarsorg, sjálfsmyndina og gredduna. Daði spilar sig svalan fyrir félögunum og stelpunni sem hann er skotinn í en undir yfirborðinu krauma mótsagnakenndar tilfinningar sem Daði reynir að átta sig á og vinna úr. Bókin byggir á algengum spurningum og umræðum drengja úr kynfræðslu.

Sagan um Daða fjallar um ungan gaur sem glímir við ástina, ástarsorg, sjálfsmyndina og gredduna. Daði spilar sig svalan fyrir félögunum og stelpunni sem hann er skotinn í en undir yfirborðinu krauma mótsagnakenndar tilfinningar sem Daði reynir að átta sig á og vinna úr. Við þessa úrvinnslu fer Daði í ítarlega naflaskoðun sem leiðir hann í tímaferðalag um eigin kynþroska, rúnkdagbækurnar og kynfræðslukvöldum mömmu sinnar.

Bókin byggir á algengum spurningum og umræðum drengja úr kynfræðslu Siggu Daggar kynfræðings um land allt undanfarin tíu ár. Það er algengt að nota dæmisögur í kynfræðslu en hér er það form tekið lengra. Hér tvinnar höfundur saman raunveruleika íslenskra drengja og kynfræðslu í eina sögu þar sem lesandinn nær að spegla sig í persónunum en einnig að fræðast um tilfinningar, samskipti, kynhneigð, og eigin kynveru.

Daði er sjálfstætt framhald bókarinnar kynVeru, sem kom út árið 2018.