Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Dauðaleit

Forsíða bókarinnar

Rannsóknarlögreglumaðurinn Halldór rannsakar hvarf stúlku í undirgöngunum í Hamraborg. Hann sér strax að málið er mjög líkt hvarfi besta vinar hans í sömu undirgöngum árið 1994. Vinurinn fannst aldrei og Halldór uppgötvar tengingu á milli ungmennanna tveggja. Skuggar fortíðar ásækja hann og enn á ný sér hann hluti sem aðrir sjá ekki.

Unglingsstúlka hverfur í undirgöngunum í Hamraborg í Kópavogi og það er eins og jörðin hafi gleypt hana.

Rannsóknarlögreglumaðurinn Halldór Kjartansson fær málið á sitt borð og sér strax að hvarfið er ískyggilega líkt hvarfi besta vinar hans þegar þeir voru strákar í sömu undirgöngum árið 1994. Vinurinn fannst aldrei.

Nú kviknar þó von hjá Halldóri og hann uppgötvar tengingu á milli ungmennanna tveggja. Í kapphlaupi við tímann leggur rannsóknarlögreglumaðurinn allt undir í leitinni, en skuggar fortíðar ásækja hann og enn á ný sér hann hluti sem aðrir ekki sjá.

Dauðaleit er taugatrekkjandi og dulúðleg glæpasaga sem heldur lesendum í heljargreipum frá upphafi til enda.

Emil Hjörvar Petersen hefur sannað sig sem sagnameistari hins dulræna í íslenskum skáldskap. Hann skrifaði meðal annars hrollvekjurnar Hælið og Ó, Karítas<>/em og verðlaunabókina Víghólar.