Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Ég er ekki fullkominn!

Ég stjórna – ekki kvíðinn

  • Höfundur Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
  • Myndhöfundur Iðunn Arna Björgvinsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Ég hef verið á botninum vegna hamlandi kvíða og líka upplifað tímabil þar sem ég tók miklum framförum. Á síðustu árum hef ég verið að uppskera eftir mikla vinnu sem ég lagði á mig. Það er von mín og trú að þessi bók komi mörgum að gagni sem glíma við kvíða en geti einnig hjálpað þeim sem ekki hafa upplifað slíkt til að skilja um hvað málið snýst.