Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Elspa

Saga konu

  • Höfundur Guðrún Frímannsdóttir
Forsíða bókarinnar

Hér rekur Elspa Sigríður Salberg Olsen harmsögulega ævi sína og upprisu til nýs lífs. Elspa, sem fæddist á Akureyri skömmu fyrir miðja síðustu öld og fékk bágborið veganesti út í lífið. Hún ólst upp við sára fátækt, alkóhólisma, ofbeldi og kynferðislega misnotkun og fór að mestu á mis við formlega menntun. Bók sem vakið hefur mikla athygli.

Í bókinni rekur Elspa Sigríður Salberg Olsen harmsögulega ævi sína og upprisu til nýs lífs á síðustu árum. Elspa, sem fæddist á Akureyri skömmu fyrir miðja síðustu öld, fékk bágborið veganesti út í lífið. Hún ólst upp við sára fátækt, alkóhólisma, ofbeldi og kynferðislega misnotkun og fór að mestu á mis við formlega menntun.

Margvíslegar raunir og mótlæti sem Elspa hefur mætt á lífsleiðinni, eins og barnsmissir, forræðissviptingar, róstusöm hjónabönd og fátæktarbasl, hafa svo sannarlega reynt á. Erfiðustu glímuna háði hún samt við sig sjálfa, en hún þurfti að sitja af sér dóm í fangelsi auk þess að leggjast inn á geðdeild oftar en einu sinni. Styrkur Elspu og staðfesta hafa þó alltaf fleytt henni í gegnum boðaföllin.

Elspa – saga konu er skráð af Guðrúnu Frímannsdóttur félagsráðgjafa, sem kom að málum Elspu og dætra hennar á sínum tíma með dramatískum hætti. Upp frá því þróaðist með þeim náinn vinskapur sem skilar sér nú í þessari mögnuðu frásögn þar sem Elspa gerir upp líf sitt af fádæma hreinskilni.