Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Foldarskart

Blómplöntur á Íslandi

  • Höfundur Helgi Hallgrímsson
Forsíða kápu bókarinnar

Hér er fjallað um íslenskar blómplöntur í máli og myndum, að undanskildum grasleitum plöntum, sem hafa óveruleg blóm. Lýst er um 300 tegundum, sem hér hafa vaxið frá alda öðli, og rakin saga þeirra, þ.e. nýting, nöfn o.fl. Auk þess er getið um 240 tegunda, sem hafa numið hér land á síðustu einni og hálfri öld, eða hafa verið hér lengi í ræktun.

Um 500 ljósmyndir eru í bókinni, þar af eru 50 heilsíðumyndir. Birt er ágrip af sögu grasafræði á Íslandi, sem ekki hefur áður sést á prenti. Nokkuð er um íslensk nýnefni í bókinni, en eldri nafna er þá jafnan getið.

Bókin er ekki flóra í venjulegum skilningi, þó eflaust geti hún notast til að greina flestar tegundir blómplantna.