Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Sálarstríð

  • Höfundur Steindór Ívarsson
Forsíða kápu bókarinnar

Lífsvegur Sólveigar mun brátt að endalokum kominn. Bára er ung kona með framtíðina fyrir sér. Í fortíð beggja leynist myrkur sem finnur sér leið upp á yfirborðið. Sálarstríð er áhrifamikil og falleg saga þar sem örlög tveggja kvenna tvinnast saman á eftirminnilegan og óvæntan hátt.

Sum leyndarmál fylgja manni ævina á enda.

Sólveig sér fram á að yfirgefa heimili sitt og flytja á hjúkrunarheimili vegna heilsubrests í kjölfar heilablæðingar. Veikindin eru alvarlegri en þau virtust í fyrstu. Óuppgerð leyndarmál þjaka hana og draugar fortíðar sækja enn fastar að henni nú þegar lífsvegur hennar virðist á enda kominn.

Bára er ung kona um miðja tuttugustu öldina. Hún er starfsnemi í kjólasaumi og framtíð hennar virðist björt. En í fortíðinni leynist myrkur sem hún á erfitt með að takast á við og í nútíðinni þarf hún að glíma við erfiðar tilfinningar og ný leyndarmál.

Sálarstríð er áhrifamikil og falleg saga þar sem örlög þessara tveggja kvenna tvinnast saman á eftirminnilegan og óvæntan hátt.

Rithöfundurinn Steindór Ívarsson hefur vakið mikla lukku meðal lesenda og hlotið tilnefningar til glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans í tvígang, fyrir bækurnar Blóðmeri og Völundur. Hér snýr hann aftur með heillandi og spennandi örlagasögu sem hittir beint í hjartastað og lætur engan ósnortinn.

  • Útgefandi Storytel Original: hljóð- og rafbók / Ástríkur bókaforlag: prentútgáfa
  • Íslensk skáldverk