Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Sjö goðsagnir um Lúther

  • Höfundur Frederik Stjernfelt
  • Þýðandi Ásmundur Stefánsson
Forsíða bókarinnar

Marteinn Lúther hafði mikil áhrif með uppreisn sinni gegn hugmyndalegu einræði páfadóms á sextándu öld. Honum eru eignuð margvísleg framfaraspor, sum með rökum sem ekki standast nánari skoðun. Í þessari bók er hulunni lyft af Lúther.

Það er óumdeilanlegt að Lúther hafði mikil áhrif snemma á sextándu öld og áhrifin voru af ýmsu tagi. Þekktar eru kröfur hans um afnám aflátssölunnar og rétt presta til að ganga í hjónaband.

En skoðanir Lúthers á mörgum öðrum málum eru almenningi lítt kunnar. Nefna má viðhorf hans til kvenna en að hans mati voru konur óhæfar til að taka þátt í umræðum um samfélagsmál. Hann var líka þess fullviss að frómt líferni og góðverk gætu ekki frelsað fólk undan ógnum helvítis. Tjáningarfrelsi var líka varhugavert, einkum ef menn voru bendlaðir við vantrú. Þá taldi hann djöfulinn alls staðar nálægan og alltumlykjandi.

Höfundur bókarinnar, danski fræðimaðurinn Frederik Stjernfelt, hefur látið til sín taka í heimalandi sínu á sviði táknfræði, hugmyndasögu og vísindafræði.