Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Fellihýsageymslan

  • Höfundur Marta Magnúsdóttir
  • Myndhöfundur Karl Kristján Davíðsson
Forsíða kápu bókarinnar

Eru krakkar skyldugir til að biðja fullorðna um aðstoð við allt sem er spennandi, skemmtilegt eða krefjandi? 6. bekkingarnir og frændsystkinin Þórunn og Santiago lenda í óvæntum aðstæðum og taka málin í sínar hendur. Við tekur skrautlegt tímabil þar sem eini fasti punkturinn í tilverunni er sjónvarpsfréttaáhorf heima hjá ömmu og afa.

Eru krakkar skyldugir til að biðja fullorðna um aðstoð við allt sem er spennandi, skemmtilegt eða krefjandi?

Í Fellihýsageymslunni kynnumst við 6. bekkingunum og frændsystkinunum Þórunni og Santiago.

Þau lenda í óvæntum aðstæðum og taka málin í sínar hendur og áður en langt um líður hafa þau spunnið lygavef sem erfitt er að vinda ofan af.

Við tekur skrautlegt tímabil þar sem eini fasti punkturinn í tilverunni er sjónvarpsfréttaáhorf heima hjá ömmu og afa.

Hver opna inniheldur myndir.

Til að gera textann læsilegri er hann í sans letri og skipt upp í tvo dálka, þá fylgir "leshjálpari" sem er spjald með glugga í miðjunni sem sýnir eingöngu eina setningu í einu og auðveldar lesanda að einbeita sér að þeim orðum er verið að lesa hverju sinni.

Einnig tilvalið að nota þegar barn hlustar á fullorðinn lesa, til að barnið geti betur tengt hlustun við orðin á blaðsíðunum og greint samhengi.

Sagan er fyrst og fremst skrifuð til að vera skemmtileg saga og þægileg aflestrar. Þó má lesandi greina ýmislegt í henni er varðar vináttu, trú á eigin getu, heiðarleika, samtakamátt, einmanaleika og fl.