Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Gling Gló

  • Höfundur Rebekka Sif Stefánsdóttir
Forsíða bókarinnar

Hvað gerist þegar snjallsíminn er tekinn af fjörugri ellefu ára stelpu?

Er yfir höfuð hægt að finna sér eitthvað að gera án hans? Eins og þetta sé ekki nógu slæmt, þá getur Elfa ekki spilað leikinn sem allir krakkarnir eru að tala um.

Tímaferðalag, undarleg barnshvörf og óhugnanlegt samsæri kemur meðal annars við sögu í þessari æsispennandi bók. Gling Gló er saga fyrir alla krakka sem elska ævintýralega tölvuleiki og dularfullar ráðgátur. Gæti þessi dáleiðandi tækni kollvarpað tilveru foreldra á litla landinu okkar?