Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

GRILL

  • Höfundar Viktor Örn Andrésson og Hinrik Örn Lárusson
  • Myndir Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir
Forsíða bókarinnar

GRILL hefur að geyma fleiri en 100 girnilegar uppskriftir úr smiðju Viktors og Hinriks í Sælkerabúðinni ásamt góðum ráðum um grill- og eldunaraðferðir. Réttir bókarinnar eru fjölbreyttir og hver öðrum gómsætari. Hráefnið er af ýmsum toga, allt frá nauti til grænmetis, villibráðar til skelfisks og sósum til eftirrétta. GRILL er yfirgripsmikil og falleg matreiðslubók sem blæs grillurum eldmóði í brjóst og tryggir að allir geti framreitt hina fullkomnu steik.

GRILL hefur að geyma fleiri en 100 girnilegar uppskriftir úr smiðju Viktors og Hinriks í Sælkerabúðinni ásamt góðum ráðum um grill- og eldunaraðferðir. Réttir bókarinnar eru fjölbreyttir og hver öðrum gómsætari. Hráefnið er af ýmsum toga, allt frá nauti til grænmetis, villibráðar til skelfisks og sósum til eftirrétta.

GRILL er yfirgripsmikil og falleg matreiðslubók sem blæs grillurum eldmóði í brjóst og tryggir að allir geti framreitt hina fullkomnu steik.

Viktor Örn Andrésson og Hinrik Örn Lárusson eru margverðlaunaðir matreiðslumenn sem hafa getið sér gott orð bæði hérlendis og erlendis. Þeir opnuðu Sælkerabúðina árið 2020 við góðan orðstír.