Langafi og jökullinn sem hvarf

Bók handa börnum og ferðamönnum á öllum aldri.

Forsíða bókarinnar

Langafi rak tíu hesta yfir ísinn. Hundrað árum síðar kom ég á sömu slóðir og sá að jökullinn var horfinn! Bráðnun Breiðamerkursjökuls og tilurð Jökulsárlóns er þungamiðja ríkulega myndskreyttrar sögu um forfeður höfundar. Bókin er þegar komin út á fjórum tungumálum; íslensku, ensku, þýsku og spænsku.