Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Glaumbær: Letni dzień w Glaumbær

Sumardagur í Glaumbæ í pólskri þýðingu

  • Höfundur Berglind Þorsteinsdóttir
  • Myndhöfundur Jérémy Pailler
  • Þýðandi Ewelina Kacprzycka
Forsíða kápu bókarinnar

Hefur þú einhvern tímann velt því fyrir þér hvernig það var að alast upp í torfbæ í gamla daga? Í þessari ríkulega myndskreyttu sögubók fylgjum við Sigga litla, vinkonu hans Jóhönnu og heimilishundinum Ysju í einn dag í lífi þeirra. Bókin gefur innsýn í daglegt líf Íslendinga á árum áður. Bókin kemur nú út á pólsku.

Sumardagur í Glaumbæ er söguleg skáldsaga sem veitir börnum sem fullorðnum innsýn í líf og störf barna á Íslandi á seinni hluta 19. aldar. Þrátt fyrir að einungis séu um 140 ár frá því sagan á að hafa átt sér stað hefur daglegt líf fólks tekið gríðarlegum breytingum og er fátt sambærilegt í lífi fólks þá og nú. Sumt breytist þó ekki í tímans rás – eins og fjölskyldubönd, þörf fyrir öryggi, vinskap, gæðastundir og hlátur, og ekki síst ánægjan við að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Bókin kemur nú út á pólsku en var áður gefin út á íslensku, ensku, frönsku og þýsku árið 2021.

Czy kiedykolwiek zastanawialiście się, jak to było dorastać w torfowych domach w dawnych czasach? W tej bogato ilustrowanej książce śledzimy przygody małego Siggiego, jego przyjaciółki Jóhanny oraz domowego psa Ysji, podczas jednego dnia ich życia. Bohaterowie przeżywają różne przygody i spotykają barwne postacie, jak choćby osobliwego Mylli-Kobbiego czy Ropa-Katrín, którzy wędrowali między wioskami w Skagafjörður w drugiej połowie XIX wieku.

Miejscem akcji jest Glaumbær, plebania w Skagafjörður, uważana za jedno z zamożniejszych gospodarstw. Historia w dużej mierze opiera się na prawdziwych postaciach, które żyły w Glaumbær lub w Skagafjörður w XIX wieku. Książka pozwala zajrzeć w codzienność ówczesnych Islandczyków, ukazaną z perspektywy dziecka. Jednocześnie wzbudza ciekawość i przybliża barwne życie ludzi tamtych czasów.