Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Þegar litla systir kom í heiminn

  • Höfundur Hrönn Valentínusdóttir
  • Myndhöfundur Þórir Karl Celin
Forsíða kápu bókarinnar

Bókin fjallar um tilfinningar og hræðslu hjá barni sem er að fara að eignast lítið systkini, óttann við að vera ekki lengur aleitt með mömmu og pabba. Reynsla barnsins er ein af birtingarmyndum kvíða og bókin getur nýst sem handbók þeirra sem vinna með börnum og foreldrum/forráðamönnum. Opnar spurningar fylgja hverri opnu sem hvetja til umræðu.

Bókin fjallar um tilfinningar og hræðslu hjá barni sem er að fara að eignast lítið systkini, óttann við að vera ekki lengur aleitt með mömmu og pabba og samband barnsins við ömmu sína. Þetta er raunveruleg reynslusaga barns. Höfundurinn er leikskólastjóri og amma barnsins sem finnst að reynsla barnsins geti hjálpað foreldrum og þeim börnum sem eru sömu aðstæðum. Hugmyndin er að með lestri þessarar bókar megi skapa umræðu með börnum sem eru að fara að eignast systkini, ná fram líðan þeirra og væntingum og undirbúa þau fyrir það sem er í vændum. Reynsla barnsins er ein af birtingamyndum kvíða og bókin getur nýst sem handbók þeirra sem vinna með börnum og foreldrum/forráðmönnum. Opnar spurningar fylgja hverri opnu sem hvetja til umræðu og málörvunnar.