Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Verði ljós, elskan

  • Höfundur Soffía Bjarnadóttir
Forsíða bókarinnar

Frásögn í ljóðum um flöktandi ljós milli svefns og vöku, milli kynslóða, um hringekju og fíkn, elskendur, leyndarmál, heilaga skál sem brotnar, tundurdufl.

Verði ljós, elskan er fimmta skáldverk Soffíu Bjarnadóttur. Áður útgefin og sviðsett verk eru skáldsögurnar Hunangsveiði og Segulskekkja, ljóðabækurnar Beinhvít skurn og Ég er hér og leikritið Erfidrykkjan.