Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Vinurinn

  • Höfundur Sigrid Nunez
  • Þýðandi Arnar Már Arngrímsson
Forsíða kápu bókarinnar

Þegar rithöfundur missir skyndilega besta vin sinn og lærimeistara situr hún uppi með hundinn hans. Hennar eigin sorg magnast við að horfa upp á hundinn þjást í hljóði. Vinir hennar telja að hún hafi misst tökin á tilverunni en hún vill ekki yfirgefa hundinn nema í örstutta stund í einu.

Einangruð frá umheiminum og með þráhyggju gagnvart velferð hundsins er hún staðráðin í að lesa huga hans og hjarta.