Höfundur: Már Jónsson

Sveinn Pálsson - Ritsafn

Heildarútgáfa í sjö bindum

Sveinn Pálsson (1762–1840) var einn helsti brautryðjandi íslenskra náttúruvísinda, læknir og frumkvöðull í rannsóknum á jöklum, eldvirkni og gróðri á Íslandi. Í þessari heildarútgáfu eru ritsmíðar hans, ferðabækur, bréf og dagbækur að finna í sjö bindum í glæsilega hannaðri öskju. Þessi útgáfa er menningarsögulegur viðburður.