Höfundur: Pjetur Hafstein Lárusson
Úr eldri árgöngum
Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.
| Titill | Höfundur | Útgefandi | Lýsing |
|---|---|---|---|
| Fáeinar sögur smáar | Pjetur Hafstein Lárusson | Skrudda | Annað smásagnasafn höfundar, en hann hefur að mestu lagt stund á ljóðagerð. Fyrra smásagnasafnið, Nóttin og alveran, kom út árið 2004. Í þessu nýja safni eru sextán smásögur og kennir þar margra grasa. Sumar sagnanna eiga sér nokkra stoð í því tvíræða fyrirbæri sem kallast veruleiki, aðrar eru eingöngu kynjaðar úr hugarheimi höfundar. |
| Fárra orða ljóð | Pjetur Hafstein Lárusson | Skrudda | Góð hæka er sem dögg í grasi eða snjókorn á nakinni trjágrein; hún kemur eitt andartak og hverfur jafnharðan, en fer þó hvergi. Þetta kann að hljóma mótsagnakennt, en ætti þó að vera augljóst þeim sem ljóðum unna. Ljóðlist, eins og öll list, er spurning um skynjun, ekki skilning. Sama gildir um tönkur, þær koma og fara, en sitja þó um kyrrt. |