Höfundur: Sif Sigmarsdóttir

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Allt sem við hefðum getað orðið Sif Sigmarsdóttir Benedikt bókaútgáfa Þrjár konur. Leyndarmál leiðir þær saman. Blaðamaðurinn Lilja fær veður af því að hún sé líklegt fórnarlamb niðurskurðar. Þegar henni er falið að fjalla um nýútkomna bók um Annie Leifs, eiginkonu tónskáldsins Jóns Leifs, vakna hjá henni grunsemdir. Getur verið að mislyndi skjalavörðurinn á Landsbókasafninu sé að spila með hana?
Banvæn snjókorn Sif Sigmarsdóttir Forlagið - Mál og menning Hanna er nýflutt til pabba síns á Íslandi, til að ganga í menntaskóla. Imogen er áhrifavaldur með meira en milljón fylgjendur sem kemur til að halda fyrirlestur um samfélagsmiðla í Hörpu. Þegar leiðir þeirra liggja saman er önnur grunuð um morð, leitin að sannleikanum leggur hina í lífshættu. Æsispennandi ungmennasaga eftir metsöluhöfund.