19 fingur upp til Guðs
Eldri maður finnst látinn í trillu við bryggju fyrir austan og dauða hans ber ekki að með eðlilegum hætti. Ásta, nýr lögreglustjóri, rekur þræði málsins þrjá áratugi aftur í tímann, að afskekktum sveitabæ þar sem unglingaheimili var rekið og samstarfsmaður hennar, Tryggvi, dvaldi sem barn. Þriðja spennubókin um Ástu eftir Unni Lilju Aradóttur.