Að taka látið fólk af lífi

Forsíða kápu bókarinnar

Fimm manna fjölskylda varð fyrir því að brotna smám saman undan áföllum, sjúkdómum og slysi. Reynt var að hlífa yngsta barninu en það tókst ekki. Þvert á móti bitnaði ástandið verr á barninu en öðrum fjölskyldumeðlimum. Áratugum síðar birtust afleiðingar erfiðleikanna sem fjölskyldan hafði þurft að kljást við með hræðilegum opinberum ásökunum.

Faðir minn, löngu látinn heiðursmaður, lá sundurtættur í rafrænni gryfju. Að sjá hundruð kommenta hlaðast upp klukkustund fyrir klukkustund, dögum saman, er eitt það skelfilegasta sem ég hef upplifað.

Jóhanna Margrét Thorlacius lendir í þeirri stöðu að finna sig knúna til þess að hugsa til baka, draga fram dagbækur og ljósmyndir og skrásetja sögu fjölskyldu sinnar. Bernskuminningarnar streyma fram eins og lækir, sumir fjörugir, aðrir lygnir. Enn aðrir eru straumharðir og velta við steinum með átakanlegum hætti.

Heilbrigð og glaðvær fimm manna fjölskylda með móðurömmu og frænkur á næstu grösum varð fyrir því að brotna smám saman undan áföllum, sjúkdómum og slysi. Reynt var að hlífa yngsta barninu en það tókst ekki. Þvert á móti bitnaði þetta sára ástand verr á barninu en öðrum fjölskyldumeðlimum.

Áratugum síðar birtust afleiðingar erfiðleikanna sem fjölskyldan hafði þurft að kljást við með hræðilegum opinberum ásökunum á hendur látnu fólki og lifandi. Enginn fótur var fyrir ásökununum en þær áttu eftir að valda ómældum skaða.