Æfing dagsins- Hreyfidagatal
Ein æfing á dag, allt árið. Hreyfidagatalið er aðgengilegt, margnota æfingadagatal fyrir eldra fólk með fjölbreyttum æfingum, s.s. fyrir styrk, jafnvægi, úthald og heilaleikfimi með möguleika á að aðlaga að getu. Samhliða æfingunum fléttast inn mikilvæg fræðsla um vellíðan og andlega heilsu og þannig færist heilsuefling inn á heimilin.
Ein æfing á dag – allt árið.
Hreyfidagatalið er sprottið úr áralangri reynslu sjúkraþjálfara af starfi með eldra fólki og því sem reynst hefur vel til heilsueflingar.
Með Hreyfidagatalinu verður dagleg hreyfing einföld, aðgengileg og ánægjuleg. Á hverjum degi bíður ný og fjölbreytt æfing sem má aðlaga að getu hvers og eins.
En Hreyfidagatalið er meira en æfingadagatal. Inn á milli æfinganna fléttast víðtæk fræðsla um fjölbreytta þætti sem stuðla að líkamlegri og andlegri vellíðan. Þar er meðal annars fjallað um öndun, slökun og núvitund, raddþjálfun, heilaleikfimi og ýmis hagnýt atriði sem styðja við heilsu og virkni í daglegu lífi.
Markmiðið er að færa heilsueflingu og fræðslu inn á heimilin og hvetja til þess að gera eitthvað lítið fyrir eigin heilsu á hverjum degi. Æfingarnar byggja hver á annarri og stuðla þannig að aukinni færni og getu. Hreyfidagatalið er margnota og bundið við daga en ekki ártöl og því má nota það aftur og aftur, ár eftir ár.
Fyrsta skrefið er reynsla – það næsta framför.