Áfall hvað svo?
Höfundur hjálpar lesendum að skilja hvað felst áföllum og hvaða áhrif þau geta haft á líf okkar. Hún gerir það á einkar aðgengilegan hátt sem auðveldar okkur að ná tengingu við þetta viðkvæma efni. Hún segir á einlægan og persónulegan hátt sögur úr eign lífi, frá áföllum sem hún hefur orðið fyrir og orðið vitni að og tengir við fræðilegt efni.
„Mér finnst ég hafa verið alla ævina að reyna að skilja sjáfa mig. Hvaðan ég kem, hvers vegna mér líður eins og mér líður. Hvers vegna ég bregst við fólki og aðstæðum eins og ég geri. Hvers vegna annað fólk hefur þau ahrif á mig sem það gerir eða bara alls engin áhrif“
Sigrún Sigurðardóttir, höfundur bókarinnar Áfall hvað svo?
„Gat ekki lagt hana frá mér. Mögnuð skrif. Persónuleg og prófessíonal. Tímamótabók fyrir öll þau sem hafa reynslu af lífsins áföllum, áhuga á sálfræði og já öll hin!“
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona, leikstjóri & handritshöfundur
„Bókin fléttar á einlægan og mannlegan hátt saman áfallafræðum, eigin reynslu og margvíslegum “heilunarleiðum”. Bókin er gagnleg bæði fyrir fagfólk og allan almenning. “
Vilborg G. Guðnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur