Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Amma nammigrís: Engin venjuleg amma

  • Höfundur Gunnhildur Stella Pálmarsdóttir
  • Myndhöfundur Gerður Steinarsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Hjartnæm og fyndin barnabók sem segir frá ömmu sem hoppar á trampólíni, gerir kollhnísa og getur borðað ótrúlegt magn af nammi. Það sem er hinsvegar farið að gerast hjá ömmu í dag er að hún er farin að gleyma.

Í bókinni eru sögur af ömmu, byggðar á sönnum atburðum. Sagan er sögð frá sjónarhorni barnabarns sem deilir gleði, hlátri og kærleika með ömmu sinni á einlægan hátt. Auk þess að vera skemmtileg lesning er bókin fræðandi. Hún útskýrir Alzheimer sjúkdóminn á einfaldan hátt og hjálpar börnum að skilja hvað getur gerst þegar ástvinur byrjar að gleyma.