Antithesis

Sjálfsmynd og samfélagið

Forsíða kápu bókarinnar

Ljóð um sjálfsmynd, samfélagið og því sem við tökum sem sjálfsögðum hlut. Bókin sprettur úr persónulegri reynslu höfundar af því að vera bæði innan og utan íslensks samfélags, en víkkar sjónarhornið yfir í spurningar um vestræna menningarhegemóníu, kapítalisma, sagnfræði, fjölmiðla, geðheilbrigði og hver fær að móta þekkingu.

Antithesis býður lesandanum að staldra við, hugsa um samfélagið frá öðru sjónarhorni og velta fyrir sér eigin stað innan þess.

„Antithesis er skyldulesning fyrir allt hugsandi fólk - og hitt fólkið líka.“

Gunnar Helgason, rithöfundur.

„Jovana skrifar beinskeytta bók um sjálfið og samfélagið, um heimsvaldastefnu, hvítan femínisma og okkur og hina. Hvernig er hægt að færa gagnrýna hugsun sem finna má í fræðigreinum yfir í ljóð?“

Bara bækur, RÚV, 19. september 2026.