Árið á Ítalíu

Forsíða kápu bókarinnar

Árið 1990 heldur ung íslensk stúlka til Ítalíu sem skiptinemi með höfuðið fullt af draumum um frelsi fegurð og menningu. Í Feneyjum endar hún í sögufrægri höll við Canal Grande, þar sem hún býr hjá efnaðri ítalskri fjölskyldu sem lifir eftir ströngum reglum og stífum hefðum. Smám saman kemur í ljós að á bak við glæsileikann leynist annar veruleiki.

Í framandi menningu að mestu mállaus og langt frá fjölskyldu og vinum, þarf hún að læra að rata um heim sem er bæði heillandi og ógnvekjandi. Árið á Ítalíu er minningaskáldsaga um þroska, menningarárekstra og leitina að frelsi. Bókin byggir á reynslu Steinunnar Bjarkar Sigurðardóttur á Ítalíu í upphafi tíunda áratugarins.