Framhald bókarinnar Minningablómið fölnar Augnablik af eilífðinni

Forsíða kápu bókarinnar

Þetta er saga Eníms Eními og fjölskyldu hans.

Á ferð sinni um geiminn uppgötvar Ením í hverju leyndardómur svarthola er fólginn. Ógn steðjar að Algúrín, heimi harakana, sem teygir sig alla leið til Krular. Ením og ástvinir hans eru í hringiðu atburðanna og kanna nýja heima þar sem óvæntir bandamenn sýna þeim mikla velvild.

Sveinn Snorri Sveinsson er fæddur árið 1973. Fyrsta bók hans, ljóðabókin Andhverfur, kom út árið 1991. Síðan þá hafa verið gefnar út eftir hann fjölmargar ljóðabækur, fimm skáldsögur, þar af tvær af sjálfsævisögulegum toga og ein teiknimyndasaga.

Augnablik af eilífðinni er ævintýraleg vísindaskáldsaga.