Autoritetens stemmer i Nordatlanten
Arkiv, forvaltning og samfund fra middelalder til nyere tid
Vestnorrænu löndin, Færeyjar, Grænland og Ísland, hafa átt sér ólíka sögulega þróun en um leið eiga samfélög þeirra margt sameiginlegt. Bókin fjallar um tilurð, þróun og hlutverk valinna embætta og kynnir jafnframt skjalasöfn þeirra. Markmiðið er að veita innsýn í hvernig ýmis stjórnvöld og embætti hafa þróast í þessum löndum í gegnum aldirnar.
Lögð er rík áhersla á greiningu bæði á verksviði embættanna og þeim skjalasöfnum sem varðveist hafa, sem mikilvægum hluta af sögu stjórnsýslunnar. Með því er lagður grunnur að frekari rannsóknum á þessu sviði.