Draumar - undir berum himni
Svava er að útskrifast úr grunnskóla. Á þessu síðasta ári fékk hún að vita að faðir hennar sem alið hefur hana upp er ekki blóðfaðir hennar. Svava fékk lítið að vita meira um hann og því skipuleggur hún leynilega ferð ásamt Agli kærasta sínum norður í land til að reyna á finna hann. Sú ferð er ekki þrautarlaus og lenda þau í hinum ýmsu raunum.
Egill og Svava eru 16 ára að útskrifast úr grunnskólanum ásamt öllum krökkunum í þeirra árgangi. Sumarið er framundan en flestir, ef ekki allir, hafa skipulagt það vel. Í haust hefja þau nám í framhaldsskóla og þá tvístrast hópurinn því ekki fara allir í sama skóla. En þangað til ætla krakkarnir að vinna sér inn pening ásamt því að fara í frí með fjölskyldu og vinum.
Egill og Svava hafa verið miklir vinir frá því að Egill flutti í bæinn að vestan sumarið fyrir 7. bekk. Vinátta þeirra þróaðist í ástarsamband þennan síðasta vetur í grunnskólanum og hafa þau verið saman í nokkra mánuði.
Svava fékk óvæntar fréttir fyrr um veturinn. Henni var tjáð að pabbi hennar, hann Gunnar, er í raun ekki blóðskyldur henni. Hún á blóðföður sem hún þekkir ekki neitt. Hún veit ekki einu sinni hvort hann er lifandi eða ekki. Hún skipuleggur því ferð með Agli þar sem þau ætla að leita að honum eða reyna að finna út hver hann er og hvaðan hann kemur og er ferðinni heitið norður í land.
Á því ferðalagi lenda þau í miklum ævintýrum.
Hvað gerist? Finna þau pabba hennar? Er hann lifandi? Hves vegna er rútubílstjórinn að horfa svona mikið á Svövu? Rætist draumur hennar um að finna föður sinn?