Ég vil ekki vera vinur þinn

Sorgarsaga úr íslenskri stjórnsýslu

Forsíða kápu bókarinnar

„Þetta var hryllilegasti dagur lífs míns” segir Pétur en þann dag var hann borinn þeim sökum að hafa áreitt samstarfskonu sína kynferðislega. Heimurinn fór á hvolf og hann skildi hvorki upp né niður. Í bókinni er lýst forkastanlegri málsmeðferð auk þess sem höfundur lýsir eigin sálarstríði.

Upplýsingar eru á facebook síðu með nafni bókarinnar.

Hér stendur Pétur frammi fyrir því að henda gömlu karlmennskuímyndinni og mæta lesandanum berskjaldaður, það er ekki auðvelt fyrir karl á hans aldri en þeim mun áhugaverðara fyrir vikið.

Höfundur segir frá erfiðri reynslu sinni þegar honum var sagt upp störfum og veltir fyrir sér brotalömum í íslenskri stjórnsýslu og karlmennskuhugtakinu. Hér er á ferðinni sorgarsaga af mannlegum samskiptum sem fóru úrskeiðis en jafnframt tilraun miðaldra karlmanns til að skilja hvað hann gerði rangt.

Höfundur var framkvæmdastjóri Eyþings - sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum þegar honum var sagt upp störfum. Hann var þá í krabbameinsferli.

Hverjir kynnu helst að hafa áhuga á að lesa frásögn Péturs? Líklega er það annars vegar áhugafólk um vandaða stjórnsýslu og hins vegar um sálræna baráttu og þá einkum og sér í lagi um afleiðingar áfalla.

Dæmi um umsagnir:

Þessi bók ætti að vera skyldulestur við kennslu í opinberri stjórnsýslu.

Þetta er ansi nærgöngul krufning á eigin sálarlífi sem gefur bókinni gildi og dýpt. Það sem situr eftir er hve sterkar tilfinningar koma í gegn og í raun flókin og djúp sorg umlykjandi.

https://www.facebook.com/p/%C3%89g-vil-ekki-vera-vinur-%C3%BEinn-61587735849146/