Emoji Kennsla
Hvað þýðir þumall frá yfirmanninum? Af hverju er saklaus broskall orðinn passíf-agressífur og hvernig getur kúkurinn tryggt þér launahækkun? Bráðfyndin kennslubók í ritmáli nútímans sem brúar bilið milli kynslóða, jafnt á vinnustaðnum sem í fjölskylduspjallinu. Að lestri loknum verður þú reiprennandi í emoji köllum.
Það eru 3.953 emoji kallar í umferð. Samfélagsmiðlakynslóðin er mætt á vinnustaðina og þeir sem réðu þar áður skilja ekki hvað hún er að segja. Af hverju móðgast allir þegar þú sendir einn saklausan þumal? Og hvað átt þú að gera þegar mamma svarar stærstu fréttum lífs þíns með þumli og punkti?
Í bókinni er farið yfir fjölda emoji kalla, allt frá broskallinum sem þú vilt forðast eins og heitan eldinn til hjartans sem ætti að fylgja fleiri tölvupóstum. Þar kemur fram hvenær tveir blikk kallar kalla á símtal til mannauðsdeildarinnar, af hverju þrír broskallar eru ekkert annað en eitruð jákvæðni og hvernig rétt notaður kúkur getur skilað þér lengri skilafresti. Hver emoji kall fær sína opnu með dæmum úr raunverulegum samskiptum, við yfirmanninn, makann og foreldrana.
Höfundarnir eru tveggja barna feður úr Garðabæ og ungur liðsmaður sem skilur yngri kynslóðirnar. Allir hafa þeir fengið sinn skammt af þumlum í andlitið. Útkoman er bráðfyndin og óþarflega nákvæm leiðarvísir fyrir alla sem hafa sent skilaboð og séð eftir því. Hún hentar jafnt sem jólagjöf handa yfirmanninum, á kaffistofuna og til foreldra sem nota enn punkt á eftir hverri setningu.
Markmiðið er einfalt: meiri tilfinningar í samskipti. Við erum jú ekki vélar.