Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Farðí rassgat Aristóteles

  • Höfundur Benóný Ægisson
Forsíða kápu bókarinnar

Guðgeir Guðgeirsson er andhetja og ólíkindatól sem allt veit, einmitt sú týpa sem fer óstjórnlega í taugarnar á fólki. Hann flyst til borgarinnar til að meika það sem rímnaskáld einhverjum hundrað árum eftir að rímur fóru úr tísku, auk þess sem rímur hans fjalla um efni sem ekki er líklegt til vinsælda eins og raunir bresku konungsfjölskyldunnar.

Í öllu þessu brasi bakar hans sér óvild auglýsingafólks, vaxtarræktarmanna, gagnrýnenda, handrukkara, og lesbíska glímufélagsins Saffó og á oft fótum fjör að launa. Brennheitur hrakfallabálkur um ástir og örlög!