Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Fjallamenn

  • Höfundur Guðmundur Einarsson frá Miðdal
Forsíða bókarinnar

Hin merka ferðabók Fjallamenn eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal kemur nú fyrir sjónir lesenda endurútgefin en hún kom fyrst út árið 1946. Þetta stórvirki inniheldur ferðaþætti frá byggðum og óbyggðum Íslands, meðal annars frá hinum dulrömmu slóðum útilegumanna, glitrandi snæbreiðum Suðurjökla, gosstöðvum Grímsvatna og auðnum hálendisins og loks veiðisögur frá straumvötnum og blátærum heiðavötnum fullum af laxi og silungi. Bókina prýða teikningar Guðmundar og fjöldi ljósmynda frá liðnum tíma.

Hin merka ferðabók Fjallamenn eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal kemur nú fyrir
sjónir lesenda endurútgefin en hún kom fyrst út árið 1946. Þetta stórvirki inniheldur
ferðaþætti frá byggðum og óbyggðum Íslands, meðal annars frá hinum dulrömmu
slóðum útilegumanna, glitrandi snæbreiðum Suðurjökla, gosstöðvum Grímsvatna og
auðnum hálendisins og loks veiðisögur frá straumvötnum og blátærum heiðavötnum
fullum af laxi og silungi. Ævintýralöngun Guðmundar leiddi hann einnig suður um höf,
til ægitignar Alpafjalla, Týról, Dólómítfjalla og allt til Grikklands og Tyrklands.

Bókina prýða teikningar Guðmundar og fjöldi ljósmynda frá liðnum tíma.
Allir sem unna ferðalögum, veiðiferðum og fagurri list verða að eignast þessa
glæsilegu bók. Enginn Íslendingur var eins víðförull og Guðmundur og enginn kunni
betur að lýsa því sem fyrir augu bar, hvort heldur var í máli eða myndum. Þetta er
fegursti óður í óbundnu máli sem Íslendingur hefur samið um útþrá og fjallsækni.