Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Fólkið í vitanum

Gleði og sorgir í Hornbjargsvita

  • Höfundur Reynir Traustason
Forsíða kápu bókarinnar

Harmþrungnar, glaðbeittar og sumpart ævintýralega fjarstæðukenndar frásagnir af fólki sem átti það sameiginlegt að velja sér búsetu á einum afskekktasta og harðbýlasta stað landsins. Fólkið í vitanum er samfelld saga vitavarða og fjölskyldna þeirra í Hornbjargsvita í 65 ár. Brjóstamjólk út í kaffið. Kýrin sem þjáðist af heimþrá oig músafárið.

Fólkið í vitanum er samfelld saga vitavarða og fjölskyldna þeirra í Hornbjargsvita í 65 ár. Tímabil sagnanna spannar allt frá byggingu vitans, árið 1930, fram til ársins 1985 þegar búseta í vitanum var lögð niður. Í bókinni er lýst baráttu fólksins og þeim mannraunum sem voru óumflýjanlegar. Þá er það glíman við einmanaleikann á stað þar sem engir komu mánuðum saman aðrir en varðskipsmenn.

Árið 1935 gengu miklar hörmungar yfir fjölskylduna í Hornbjargsvita þegar tvö yngstu börnin og móðir þeirra dóu á nokkrum dögum. Fjölskyldan sem tók við vitavörslunni mætti þeim hræðilegu örlögum að vitavörðurinn lést sviplega og fjölskyldan sat eftir í sárum.

Ráðskonan í Hornvík gaf brjóstamjólk út í kaffið. Kýrin sem þjáðist af heimþrá og strauk. Refirnir við vitann. Músafárið og kötturinn sem drapst hafísveturinn mikla.

Vitavörðurinn lagði upp í háskaför og braust suður víkur í dauðaleit að skipbrotsmönnum. Langvarandi tannpína vitavarðar og bjargvættur sem kom með gúmbáti. Skáldkona flæmdi herinn frá Hornströndum. Huldukona laðaði til sín stúlkubarn. Tundurdufl velktist um í fjörunni og heimafólk flúði í skjól. Unglingurinn sem mætti í skólann á varðskipi.

Harmþrungnar, glaðbeittar og sumpart ævintýralega fjarstæðukenndar frásagnir af fólki sem átti það sameiginlegt að velja sér búsetu á einum afskekktasta og harðbýlasta stað landsins.

Reynir Traustason skrifaði bókina á árunum 2019-2025. Hún byggir á fjölda viðtala, bréfaskriftum og rituðum útgefnum heimildum um líf og starf í vitanum og nágrenni hans. Reynir sameinar reynslu sína úr fjölmiðlum og af gönguferðum og fararstjórn um fjöll og firnindi.