Frelsarinn
Í upphafi var Þögnin. Í marga mánuði var slökkt á heiminum – engin ljós, engar fréttir, ekkert net. Súpergreind hafði tekið völdin. Þegar kveikt er á öllu á ný stígur fram dularfull kona í Asíu. Hún er kölluð Frelsarinn af fylgjendum sínum og fremur röð kraftaverka sem gefa nýja von.
Í upphafi var Þögnin.
Í marga mánuði var slökkt á heiminum – engin ljós, engar fréttir, ekkert net. Mannkyn stóð bjargarlaust andspænis nýjum veruleika: Súpergreind hafði tekið völdin.
Þegar kveikt er á öllu á ný stígur fram dularfull kona í Asíu. Hún er kölluð Frelsarinn af fylgjendum sínum og fremur röð kraftaverka sem gefa nýja von. Er hún dýrlingur, slátrari eða bara enn einn svikarinn?
Í skugga hennar tvinnast saman þrjú líf: herlæknir á Tælandi, tæknijöfur með lykilinn að Endalokunum í vasanum og blind stúlka í norskum firði.
Steinar Bragi hefur um árabil verið í fremstu röð íslenskra skáldsagnahöfunda og sögur hans hafa ratað til lesenda um allan heim. FRELSARINN er framtíðartryllir um guði og vélar – og það sem kemur á eftir.