From Reykjavík to Penang; Stories of Love and Happiness

Forsíða kápu bókarinnar

Bókina skrifa tvær vinkonur sem eru báðar félagssálfræðingar og starfa í sitthvori heimsálfunni, önnur sem prófessor í Malasíu og hin sem vinnusálfræðingur á Íslandi. Þær langaði að bera saman samfélög sín með gleraugum hamingjufræða og jákvæðrar sálfræði.

Þessi bók skoðar nánar hvað hamingja raunverulega er, hvers vegna hún skiptir máli og í henni eru hagnýt verkfæri sem geta hjálpað okkur að staldra við og reyna að ná betur utan um eigið líf svo við festumst síður í hjólförunum að eingöngu komast af, frá einum degi til annars.. Bókin byggir á sjónarhorni jákvæðrar sálfræði og fjallar um hvernig við getum fundið meiri gleði og blómstrað í lífinu. Fjallað er um mikilvæga þætti hamingjunnar, svo sem sjálfsumhyggju, merkingarbær tengsl við aðra, tilgang í lífinu og von um framtíðina. Með skemmtilegum og hagnýtum aðferðum lærir lesandinn hvernig hægt er að efla jákvæða reynslu í eigin lífi og um leið stuðla að meiri hamingju og vellíðan hjá fólkinu í kringum sig. Borin er saman hvernig hamingja og gleði birtist ólíkt í þessum ólíku samfélögum.