Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Glaðlega leikur skugginn í sólskininu

  • Höfundur Steinn Kárason
Forsíða bókarinnar

Drengur vex upp í sjávarþorpi við fjörð sem fóstrar blómlegar sveitir. Hann sér eitt og annað sem aðrir skynja ekki. Það reynist honum þungt í skauti. Ógeðfelldir atburðir gerast í lífi fólksins.

Mannlegur breyskleiki birtist í ýmsum myndum. Sannleikur þolir ekki dagsljós.

Hlýr blær og glettni ríkja í sögunni þrátt fyrir skuggalegt baksvið.

Ungur drengur vex upp í sjávarþorpi við fjörð sem fóstrar blómlegar sveitir. Nánd við sjó og sjómenn, bændur og búalið, mynda bakgrunn sögunnar. Leiksviðið er bærinn, gömul hús, fjaran, bryggjurnar, sveitin.

Strákar leika sér og rækja skyldur sínar í heimi fullorðinna. Drengurinn hænir að sér dúfur. Hann forðar kettlingi frá dauða og verða með þeim miklir kærleikar, eða hvað ...

Drengurinn sér eitt og annað sem aðrir skynja ekki. Það reynist honum þungt í skauti ...

Ógeðfelldir atburðir gerast, viðkvæm atvik í lífi fólksins ...

Mannlegur breyskleiki birtist í ýmsum myndum. Sannleikur þolir ekki alltaf dagsljósið ... Hversu mikils virði eru þá háleit markmið og reisn?

Sagan gerist í skugga kalda stríðsins. Rússagrýlan og Kúbudeilan eru í hámarki og í fyrsta sinn í sögunni stendur mannkynið frammi fyrir tortímingu heimsins vegna kjarnorkusprengju.

Hlýr blær og glettni ríkja í sögunni þrátt fyrir skuggalegt baksvið.

Steinn Kárason er mörgum kunnur fyrir fræðibækur sínar, tónlist og dagskrárgerð fyrir sjónvarp og

útvarp. Glaðlega leikur skugginn í sólskininu er fyrsta skáldsaga hans.