Guð vill það!
Saga krossferða og heilags stríðs í Botnalöndum á miðöldum
Krossferðirnar, herferðir Evrópumanna austur í Botnalönd á miðöldum, eru merkur þáttur miðaldasögunnar og hafa löngum vakið áhuga fræðimanna og áhugafólks um sögu mannkyns. Af þessum herferðum, sem sumar voru að undirlagi páfans í Róm, er mikil og blóði drifin saga sem rakin er í þessari bók.