Guðir og annað fólk
Hér er á ferðinni einstök íslensk vísindaskáldsaga. Þetta er súrrealísk og goðsagnakennd fantasía með leiftrandi húmor, atburðarás og persónum sem munu koma þér á óvart. Bókin er fáanleg í prentformi í Pennanum Eymundsson og í Nexus og sem rafbók á Amazon Kindle, Storytel og Kobo. Einnig er hún væntanleg sem hljóðbók á Storytel.
Grímur er í Reykjavík. Fyrir ofan dökka hlið Tunglsins svífur geimskip Eggfólksins undir stjórn Tromps IV, sem hyggst útrýma mannkyninu.
Á jörðu niðri er Grímur guð í gervi manns og bíður þess að verða kallaður fyrir ÖlfuOmega – almáttuga veru sem er ósnertanleg og ósýnileg flestum og talar í óræðum kaótískum skipunum. Hún skipar honum að hafa upp á Loka í Róm og finna Barnið áður en Eggfólkið ræðst til atlögu. Í þessu verkefni er Aþena við hlið hans sem klettur sem treystir aðeins skynseminni, Freyja hin djúpvitra gyðja sem allir leita ráða hjá, jafnvel AlfaOmega, og Búda sem dregst inn í valdaspilið, gyðjan sem geislar af orkustöðvunum sjö og fer óendanlega í taugarnar á ÖlfuOmega. Þau takast á við að fylgja óræðum skipunum ÖlfuOmega, berjast við hinn sjálfhverfa en miskunnarlausaTromp, og síðast en ekki síst, takast á við eigin trú í heimi þar sem enginn er alveg guð og enginn er alveg manneskja. Súrrealísk goðsagnakennd saga um sköpun, baráttu á milli góðs og ills, ástar og þess ótrúlega hversdagslega. Guðir og annað fólk er þriðja útgefna bók Steingríms Mássonar og jafnframt hans fyrsta skáldsaga.
Þvílíkt hugmyndaflug
„Kláraði stórskemmtilega bók, Guðir og annað fólk, eftir Steingrím Másson, þvílíkt hugmyndaflug hjá Dúa, stolt af kærum vin.“
Halla Margrét Árnadóttir, Óperusöngvari
Einstakur ævintýraheimur
„Ég varð sorgmædd þegar ég las síðustu blaðsíðuna. Mig langaði ekki að yfirgefa þennan einstaka ævintýraheim.“
Anna María Geirsdóttir, Myndlistarmaður