Hæfileika­skólinn

Forsíða kápu bókarinnar

„Enginn er góður í öllu en við erum öll góð í einhverju“

Orri arnarungi vill fara í skóla til að rækta hæfileika sína. Í leit sinni að góðum skóla lendir hann í alls kyns hremmingum. Eins og í öllum góðum sögum endar allt vel og Orri getur þroskað hæfileika sína í stað þess að reyna að læra það sem hann er ekki skapaður til að gera.

Þessi bók er fyrst og fremst hugsuð til að efla orðaforða, fræða og skemmta. Bókin er einnig tilvalin fyrir börn með íslensku sem annað mál.

Efni bókarinnar styður við umræðu um fjölbreytileika, hæfileika, kjark, samvinnu, styrkleika og tilfinningar og í lok bókar eru spurningar til umhugsunar varðandi efni sögunnar.

Umsögn leikskólakennara

„Bókin er skemmtileg, með fallegan boðskap og margt hægt að taka út til að ræða um við krakkana. Af hverju getur Orri ekki gert það sama og mörgæsin eða einhver annar?“