Hefnd Þórdísar

Forsíða kápu bókarinnar

Þrjár menntaskólastúlkur glíma við afleiðingar kynferðisbrota. Dómskerfið bregst þeim og í reiði sinni og örvæntingu særa þær upp draug úr gamalli draugasögu og senda á gerendur sína. Sú ákvörðun reynist afdrifarík. Í stað þess að leita réttlætis, vöktu þær upp eitthvað annað. Eitthvað sem hafði mun dekkri hugmyndir um hefnd en þær.