Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Skuggabrúin Heiðmyrkur

  • Höfundur Ingi Markússon
Forsíða kápu bókarinnar

Í Heiðmyrkri lýkur Ingi Markússon sögunni sem hófst með Skuggabrúnni og hélt áfram í Svikabirtu, bókum sem vakið hafa verðskuldaða athygli og lof. Heiðmyrkur bindur þríleikinn saman í myrkri frásögn á mörkum fantasíu og vísindaskáldskapar - sögu um vináttuna og hefndina; lífið og eilífðina; vitundina og vélina; ljósið, myrkrið og skugga mannsins.

Áratug eftir atburði Svikabirtu sækja illir draumar á Dimmbrá. Djúpt í iðrum jarðar kynnist hún leyndustu kimum seiðsins. Hnikar reikar um heimskautið uns hann finnur ný heimkynni langt í suðri; óafvitandi kallar hann Dimmbrá til sín með ófyrirséðum afleiðingum. Indra vex úr grasi á Bifröst uns hún stígur niður, þess albúin að leggja jörðina að fótum sér. Í bakgrunni er uppruni stjarneyga fólksins, útdauði mannkynsins og endalok skuggabrúarinnar.

Í Heiðmyrkri lýkur Ingi Markússon sögunni sem hófst með Skuggabrúnni og hélt áfram í Svikabirtu, bókum sem vakið hafa verðskuldaða athygli og lof. Heiðmyrkur bindur þríleikinn saman í myrkri frásögn á mörkum fantasíu og vísindaskáldskapar - sögu um vináttuna og hefndina; lífið og eilífðina; vitundina og vélina; ljósið, myrkrið og skugga mannsins.

„Lokahnykkurinn á metnaðarfullum þríleik sem markar spor í íslenska furðusagnahefð."

Hildur Knútsdóttir

„Dulræn og mögnuð vísindaskáldsaga."

Alexander Dan