Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Hinstu blíðuhót

Augnablik í eilífðinni

  • Höfundur Kjersti Anfinnsen
  • Þýðandi Anna Kristín Hannesdóttir
Forsíða bókarinnar

Hjartaskurðlæknirinn Birgitte Solheim er komin á eftirlaun. Þegar endalokin færast nær virðist henni sem allt rakni upp og losni. Hún er orðin öldruð og flestir í vinahópnum hafa safnast til feðra sinna.

Líkami Birgitte hrörnar og hneppir hana í bönd svo hún einangrast. Einmana dvelur hún löngum stundum í íbúð sinni í París.

Starfsferill hennar innan karlaheims hefur tekið á, og henni láðist að stofna fjölskyldu. Nú reynir Birgitte að sættast við líf sitt en hefur ekki gefið drauminn um ástina upp á bátinn.

Hér birtast saman í einni bók tvær skáldsögur norska rithöfundarins Kjersti Annfinnsen, sem báðar fjalla um hjartaskurðlækninn Birgitte og viðureign hennar við tímann og aldurinn. Sagan er ljúfsár, viðkvæm, kómísk og dálítið bitur frásögn af einsemd, ást og dauða.